Vinsamlegast vandið útfyllingu umsóknareyðublaðsins og munið að láta fylgigögn fylgja með (umsögn og tvær íþróttamyndir)
Afreksefni teljast ungmenni að 25. aldursári, sem talin eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu á landsvísu.
Markmiðið er að ná til og styðja við einstaklinga sem standa framarlega í sinni grein, eru efnileg og stunda sína íþróttagrein vel. Eru ekki endilega í landsliðsverkefnum eða unnið Íslandsmeistaratitla en með aukinni og markvissri þjálfun og metnaði eigi möguleikann á að ná því.