Fara í efni

6. bekkur kemur með erindi

Það var fjölmennt í fundarsal stjórnsýsluhússins á Húsavík í dag þegar 6. bekkur úr Borgarhólsskóla kom með formlegt erindi ásamt undirskriftalista.
Þar óska nemendurnir eftir fleiri leiktækjum á skólalóðina og telja þar upp t.d. körfuboltavöll, trampólín, kastala með rennibraut, aparólu og fleira. 

Drífa, fjármálastjóri Norðurþings, tók glöð við erindinu sem fer nú í formlegt ferli hjá sveitarfélaginu.