Fara í efni

Aðalfundarboð Orkuveitu Húsavíkur ohf.

AÐALFUNDARBOÐ.

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2018, vegna starfsársins 2017, verður haldinn föstudaginn 13. apríl 2018 kl. 10.30 í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.

Dagskrá samkv. 14. grein samþykkta félagsins:

  1. Stjórn félagsins skal skýra hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðu starfsári.
  2. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
  3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað og tap félagsins á reikningsárinu.
  4. Kjör stjórnar.
  5. Kjör endurskoðanda.
  6. Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
  7. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

 

f.h. stjórnar OH
Gunnar Hrafn Gunnarsson
framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur ohf.