Fara í efni

Auglýsing um forsetakosningar

 

Auglýsing um forsetakosningar
laugardaginn 25. júní 2016


Upplýsingar um framlagningu kjörskrár
og framkvæmd forsetakosninga í Norðurþingi.


Frá 15. júní til og með 24. júní liggur kjörskrá vegna forsetakosninganna frammi á skrifstofum Norðurþings á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Athugasemdir skulu berast sveitarstjórn Norðurþings.
Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 25. júní 2016, hafa allir 18 ára
og eldri sem eru á kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.


Norðurþingi er skipt niður í eftirfarandi fimm kjördeildir:


Kjördeild I og II – Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00.
Inngangur í Borgarhólsskóla að austanverðu, gegnt Framhaldsskólanum á Húsavík.


Kjördeild III – Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.


Kjördeild IV – Stóru-Mörk (dagvist aldraðra)
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.


Kjördeild V – Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn (Ráðhúsið)
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.


Allar nánari upplýsingar um framkvæmd forsetakosninganna fást hjá Norðurþingi í síma 464-6100 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.


Yfirkjörstjórn Norðurþings
Ágúst Sigurður Óskarsson
Hanna Ásgeirsdóttir
Höskuldur Skúli Hallgrímsson