Fara í efni

Auglýsing um forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020

Frá 16. júní til og með 26. júní liggur kjörskrá vegna forsetakosninganna frammi á skrifstofum Norðurþings á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.  Athugasemdir skulu berast sveitarstjórn Norðurþings.

Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 27. júní 2020, hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir, skv. eftirfarandi:

Kjördeild I og II – Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00.
Inngangur að austanverðu, gengt Framhaldsskólanum og Íþróttahöllinni.

Kjördeild III – Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Kjördeild IV – Skólahúsinu Kópaskeri
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Kjördeild V – Ráðhúsinu á Raufarhöfn
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifsstofum sýslumannsins á Húsavík að Útgarði 1, kl. 09:00 - 15:00

Greiða má atkvæði á eftirfarandi skrifstofum Norðurþings:

  • Raufarhöfn: Skrifstofu Norðurþings, Aðalbraut 23, kl. 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00.
  • Kópasker: Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu 10, kl. 9:00 til 16:00.

Allar nánari upplýsingar um framkvæmd forsetakosninganna fást hjá Norðurþingi í síma 464-6100 og á upplýsingavefnum
www.kosning.is.

Yfirkjörstjórn Norðurþings
Ágúst Sigurður Óskarsson
Hallgrímur Jónsson
Hermína Hreiðarsdóttir