Fara í efni

BREYTINGAR Á VIÐVERUTÍMA SSNE VEGNA STYRKUMSÓKNA Í UPPBYGGINGARSJÓÐ

*** BREYTINGAR Á VIÐVERUTÍMA SSNE VEGNA STYRKUMSÓKNA Í UPPBYGGINGARSJÓÐ ***

 

Þar sem almannvarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna Covid-19 verðum við að laga áður auglýstan viðverutíma vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð að nýjum aðstæðum.

Við verðum öll að gæta ítrustu varkárni og leggja okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni við veiruna.  Þar er ein af megináherslunum að lágmarka samgang fólks á milli.  Því bjóðum við nú rafræna aðstoð til allra þeirra sem hyggjast sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð en hægt er að bóka tíma hjá ráðgjöfum SSNE í gegnum tölvupóst eða í síma 464 5400.  Opið er fyrir umsóknir til 4 nóvember og ekki er útilokað að við heimsækjum áður auglýsta staði áður en fresturinn rennur út, en til þess þarf neyðarstigi að vera aflétt. 

Um leið og við þökkum skilning á þessum nauðsynlegu breytingum, viljum við hvetja ykkur öll sem hafið góðar hugmyndir í pokahorninu að hafa samband og bóka tíma til að fá hjálp við undirbúning eða frágang umsóknar. 

Það voru mörg áhugaverð verkefni sem fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði á þessu ári en hér má sjá lista yfir þau.  Verður þitt verkefni á listanum 2021?

Við hlökkum til að heyra frá ykkur.

 

Ari Páll                 aripall@ssne.is                Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar

Rebekka              rebekka@ssne.is             Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar

Vigdís                  vigdis@ssne.is                  Verkefnastyrkir á sviði menningar & stofn-og rekstrarstyrkir á sviði menningar   

 

*****

 

OPIÐ FYRIR STYRKUMSÓKNIR ÚR UPPBYGGINGARSJÓÐI NOÐURLANDS EYSTRA TIL 4. NÓVEMBER 2020

Frekari upplýsingar er að finna hér.