Fara í efni

Aðgerðir á Kópaskerslínu næstu vikur

 

Á næstu vikum verða óvenju margar aðgerðir á Kópaskerslínu sem fæðir rafmagn inn á norðausturhornið. 

 

Dagana 15. til 17. ágúst fer fram fullnaðarviðgerð á línunni eftir eldingaveður í byrjun 30. júní.  Alls skemmdust 27 stæður á línunni en gert var við þá stæðu sem mest skemmdist aðfaranótt 7. júlí. Allir sem koma að verkinu eru sammála um að ekki sé óhætt að bíða með viðgerðir fram í september enda getur þá verið allra veðra von eins og íbúar á norðausturhorninu þekkja mæta vel.

 

Einnig þarf að fara í aðgerðir sem tengjast þeim framkvæmdum sem eru í gangi á svæðinu.  Í byrjun september þarf að fara í aðgerðir til að  undirbúa línuna fyrir tengingu hennar við varanlega kerfið við Þeistarreyki.  Eftir að þeim aðgerðum líkur verður línan tengd við byggðarlínuhringinn frá Kröfluvirkjun, auk tengingar við Akureyri í gegnum Laxárvirkjun.  Mun það auka afhendingaröryggi á norðausturhorninu enda er línann milli Akureyrar og Laxárvirkjunar komin vel til ára sinna.

 

Að lokum þarf að taka rafmagn af Kópaskerslínu þegar línurnar á milli Þeistarreykja og Bakka verða strengdar yfir Kópaskerslínu.  Er sú aðgerð áætluð 19. september.  Reynt verður að sameina þá vinnu við tengingu Kópaskerslínu við Þeistarreyki ef möglegt er.

 

Á meðan þessum aðgerðum stendur mun RARIK keyra varaaflstöðvar á Raufarhöfn, Þórshöfn og Bakkafirði, auk þess sem færanlegar stöðvar verða staðsettar í Lindarbrekku og Kópaskeri.  Varaafl verður reyndar aukið á Raufarhöfn og Þórshöfn og verða því samtals fjórar færanlegar vélar staðsettar á svæðinu.  Það má því búast við hvin frá rafstöðvunum þessa daga auk þess sem rafmagn kann að verða óstöðugra.  Í lok dags þarf einnig að taka rafmagn af í örstuttan tíma í Kelduhverfi, Öxarfirði, Kópaskeri, Sléttu og mögulega hluta Kópaskers þegar fært verður frá varaafli yfir á netið. Tilkynningar verða sendar til notenda þar sem það á við.

 

Landsnet og RARIK vona að íbúar á svæðinu sýni þeim óþægindum sem af þessum aðgerðum leiðir skilning.