Fara í efni

Af vetraríþróttum

Veturinn hér norðanlands hefur  verið snjóléttur með eindæmum og þarf sennilega að fara langt aftur í sögubækur til að finna annað eins. Varla er snjókorn í Skálamel þegar þessi orð voru skrifuð enn fyrir um ári síðan voru tugir fólks á öllum aldri að renna sér í brekkunni.

Skíðagöngumenn á Húsavík og í nágrenni halda þó sínu striki og eru aðstæður fyrir þá frábærar þessa dagana. Á Reykjaheiði sem er um 5 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík eru kjöraðstæður fyrir skíðagöngufólk. Síðastliðinn laugardag var einmuna veðurblíða og fjöldi fólks að iðka þessa skemmtilegu íþrótt sem mikill vöxtur er í þessa dagana.

Gönguspor eru troðin reglulega af Norðurþingi og eru þau auglýst inná facebook síðu Völsungs. (https://www.facebook.com/V%C3%B6lsungur-318539844875/?fref=ts)
Oftast eru troðnir tveir hringir, einn 3km hringur og annar 5 km langur.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af veðurblíðunni um helgina sem göngumenn settu inná facebook síðu Völsungs.
Einnig er samanburður á aðstæðum í Skálamel árið í lok febrúar 2016 og byrjun mars 2017.

Myndir af Reykjaheiði þann 4. mars 2017 - Tekið af facebook síðu Völsungs

            

 

Skálamelur

20. febrúar 2016

6. mars 2017                      

Hægt er að smella á myndirnar til að stækka.

Kjartan Páll Þórarinsson 
Íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings