Fara í efni

Auglýsing um lausar byggingarlóðir í Norðurþingi

Auglýsing um lausar byggingarlóðir í Norðurþingi

 

Framkvæmdanefnd Norðurþings hefur ákveðið að bæta einbýlishúsalóðum að Hrísateigi 7-12 í Reykjahverfi á lista yfir lausar lóðir í Norðurþingi.  Við Hrísateig eru þegar sex einbýlishús í grónu umhverfi um 10 km sunnan Húsavíkur.  Gatan verður framlengd ef áhugi reynist fyrir lóðunum. Hver lóð er 900 m², heimilað nýtingarhlutfall 0,3 og þar gert ráð fyrir byggingum á einni hæð. 

Listi yfir aðrar lausar byggingarlóðir á vegum Norðurþings er birtur á heimasíðu sveitarfélagsins, nordurthing.is.  Nánari upplýsingar um lausar lóðir veitir undirritaður á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings á Húsavík.

 

Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi