Fara í efni

COVID-19 - Tilkynning vegna sorphirðu

Vegna COVID-19 faraldurs vill Íslenska gámafélagið koma eftirfarandi tilmælum á framfæri:

  • Almennt sorp þarf að vera í vel lokuðum pokum og ekki má yfirfylla tunnur.
  • Smitaðir einstaklingar þurfa sérstaklega að gæta þess að snýtibréf fari í vel lokuðum poka í Gráu tunnuna fyrir almennt sorp.
  • Umfram sorp sem kemst ekki í tunnur, þurfa íbúar að skila sjálfir á gámasvæðið.
  • Flokkun á endurvinnsluhráefni helst óbreytt enn sem komið er.


Þessi tilmæli eru til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk okkar þurfi að snerta sorpið og til að draga úr smithættu.