Fara í efni

Drífa Valdimarsdóttir ráðin í starf fjármálastjóra Norðurþings

Drífa Valdimarsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Norðurþings.

 Drífa er með Cand.Oceon próf af fjármálasviði frá Háskóla Íslands og M.Sc í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá sama skóla. Einnig hefu hún lokið M.Acc gráðu í viðskiptafræði með áherslu á reikningsskil og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur Drífa sinnt starfi deildarstjóra bókhalds Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, áður starfaði hún sem fjármálastjóri BSRB og sem sérfræðingur á fjármálasviði Reykjavíkurborgar. Í störfum sínum hefur Drífa öðlast góða reynslu af fjármálastjórnun, áætlanagerð, uppgjörum og endurskoðun. Einnig hefur Drífa mikla reynslu og þekkingu á opinberu starfsumhverfi.

 Norðurþing býður Drífu hjartanlega velkomna í starfsmannahópinn.