Fara í efni

Félagsmiðstöðin Tún á Húsavík auglýsir eftir starfsfólki

Félagsmiðstöðin Tún á Húsavík auglýsir eftir starfsfólki í vaktarvinnu á kvöldin. Unnið er með ungmennum á aldursbilinu 10-16 ára.
Vinnutími getur verið breytilegur en fer að mestu leyti fram eftir kl. 17:00 – 22.00 mánudaga og miðvikudaga. Um er að ræða rúmlega 20% vaktavinnu.
 
Umsækjandi þarf að:
·         Hafa náð 18 ára aldri.
·         Hafa hreint sakavottorð
·         Hafa gott vald á íslensku
·         Hafa áhuga á að vinna með börnum
·         Geta unnið vel með öðrum
·         Vera liprir og jákvæðir í mannlegum samskiptum.
·         Hafa frumkvæði og verið sveigjanlegur í starfi
·         Reynsla að starfi með börnum/ungmennum er æskileg.
 
Viðkomandi má hefja störf þegar í stað.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
 
Umsóknarfrestur er til 30. mars 2021
Eingöngu er tekið við umsóknum sem berast með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað á vef Norðurþings – www.nordurthing.is 
Frekari upplýsingar veitir Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings í síma 464-6100 – kjartan@nordurthing.is