Fara í efni

Íþróttaæfingar eftir 4.maí

Íþróttamannvirki á Húsavík
Fyrirkomulag opnanna eftir 4.maí

 

Þann 4.maí hefjast æfingar að nýju hjá íþróttafélögum að uppfylltum skilyrðum sem fram eru sett af yfirvöldum.
Nánar má lesa um skilyrði fyrir opnun á covid.is

 

Norðurþing gert eftirfarandi ráðstafanir í samráði við íþróttafélög í sveitarfélaginu.

 Vodafonevöllur – gervigras

-          Til öryggis og einföldunar verða búningsklefar lokaðir að sinni.

-          Völsungur skilgreinir sérstakan æfingatíma fyrir meistaraflokka félagsins. Á þeim tíma sem fullorðnir eru við æfingar er mælst er til þess að svæðið verði lokað öðrum iðkendum. 

 

Íþróttahöllin á Húsavík

-          Æfingar hjá börnum og ungmennum fara fram með eðlilegum hætti.

-          Til öryggis og einföldunar verða búningsklefar lokaðir.

-          Þreksalur er læstur og öll umferð um hann óheimil enda eru líkamsræktarstöðvar lokaðar að sinni.

-          Tilmæli til foreldra að bíða fyrir utan þegar börn eru sótt og fara ekki inní húsið að óþörfu. Oft safnast mikill fjöldi fyrir í forstofu og erfitt er að halda fjarlægð á milli fólks.

 

Sundlaugin á Húsavík

-          Skipulagðar æfingar hjá börnum og ungmennum hefjast nýju.

-          Þjálfarar hafa samband við forstöðumann sundlaugar varðandi æfingatíma enda er laugin lokuð almenningi.

-          Foreldrar og forráðamenn sem eru að sækja börn á æfingar koma ekki inn í afgreiðslu sundlaugar enda laugin lokuð almenningi.

 

Raufarhöfn og Kópasker

-          Forsvarsmenn félaga sem standa fyrir æfingum er bent á að hafa samband við íþrótta- og tómstundafulltrúa ef hefja á æfingar að nýju.