Fara í efni

Jökulsárhlaupið haldið í fimmtánda sinn

Fimmtánda Jökulsárhlaupinu lauk nú laugardaginn 11. ágúst. Um er að ræða utanvegahlaup sem er haldið í stórbrotinni náttúru.

Í ár var hlaupið í blíðskaparveðri og höfðu einhverjir hlauparar orð á því að það væri hreinlega of heitt. Hiti í Ásbyrgi var 18 gráður, sól og blíða. Hægt er að hlaupa 13 km, 21,2 km og 32,7 km og enda allar hlaupaleiðirnar við Gljúfrastofu í Ásbyrgi. Vinsældir og orðspor hlaupsins hafa borist víða og komast færri að en vilja ár hvert. 
Þess  má geta að forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson var á meðal þátttakenda þetta árið.

Upplýsingar um hlaupið má finna inná heimasíðu Jökulsárhlaupsins, facebook síðu hlaupsins og einnig má lesa skemmtilega lýsingu Róberts Marshall á hlaupinu inná vefnum vertuuti.isHlaupið er dæmi um öflugt samfélagsverkefni í sveitarfélaginu en segja má að allir í Öxarfirði sem vettlingi geta valdið leggi sitt af mörkum til að gera hlaupið eins glæsilegt og raun ber vitni. Um 70 sjálfboðaliðar koma að framkvæmd hlaupsins með því t.d. að halda utan um skráningu, elda mat, setja upp drykkjarstöðvar á leiðinni þar sem víða þarf að bera vatn um langan veg. Norðurþing er á meðal stoltra styrktaraðila viðburðarins.