Fara í efni

Kynning skipulags-og matslýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 vegna nýrra efnistökusvæða.

Byggðarráð Norðurþings, að tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkti á fundi sínum þann 28. júní 2018 að kynna skipulags- og matslýsingu, skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytingar á aðalskipulagi Norðurþings vegna fjögurra nýrra efnistökusvæða. Námurnar sem um ræðir eru Norðan við Hólssel, Norðmelur, vestari Tjaldstæðisháls og Kjalarásnáma. Allar námurnar hafa verið nýttar en var lokað fyrir nokkru síðan. Vegagerðin ráðgerir að taka efni í malarslitlag á næstu árum og verður gert grein fyrir frágangi á þeim þegar að vinnslu lýkur.

 

Skipulags- og matslýsing þessi er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is) auk þess sem hún hangir uppi á skrifstofu Norðurþings á Húsavík. Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 2. ágúst 2018.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is og sigurdis@nordurthing.is).

 

 Hér má nálgast skipulagslýsinguna

 

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi