Fara í efni

Lista- og menningarsjóður Norðurþings

Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram á reglulegum fundum fjölskylduráðs. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á hér á www.nordurthing.is

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt eyðublað á www.nordurthing.is

Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir fjölmenningarfulltrúi - sigrunbjorg@nordurthing.is eða í síma 464 - 6100