Fara í efni

Norðurþing sækir um að gerast Heilsueflandi samfélag

Á janúarfundi Sveitarstjórnar Norðurþings var samþykkt samhljóða að sækja um aðild að verkefninu heilsueflandi samfélag.

Embætti landlæknis leiðir leiðir verkefnið á landsvísu og verður Norðurþing 16. sveitarfélagið til að taka þátt í verkefninu.
Á vefsíðu landlæknis segir: ,, Í heilsueflandi samfélagi er stöðug áhersla lögð á að bæta bæði hið manngerða og félagslega umhverfi íbúa, draga úr ójöfnuði, og draga úr tíðni og afleiðingum langvinnra sjúkdóma með margvíslegu forvarnar- og heilsueflingarstarfi ".

Nánar má lesa um verkefnið inná vefsíðu Embættis landlæknis undir flipanum Heilsa & líðan.

Stefnt er að formlegri undirritun um mánaðarmótin febrúar/mars og verður hún auglýst sérstaklega.