Fara í efni

Rekstraraðilar í sundlauginni í Lundi - laugin opnar í vikunni

Rekstraraðilar eru komnir við sundlaugina í Lundi.

Það eru þau Neil og Cordelia sem munu standa vaktina í sumar. Þau eru með víðtæka reynslu og hafa meðal annars unnið við leiðsögn við köfun á Íslandi síðastliðin tvö ár.
Það er mikið ánægjuefni að sundlaugin í Lundi sé opin og í ár og bjóðum við þau velkomin á staðinn.

Í dag unnu þau hörðum höndum að undirbúningi opnunar og stefna þau á að opna laugina þriðjudaginn 20.júní.

Frekari upplýsingar verður að finna á facebook síðu sundlaugarinnar. https://www.facebook.com/sundlauginilundi/?fref=ts