Fara í efni

Samkeppni um nafn á nýrri vatnsrennibraut við Sundlaug Húsavíkur

Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um nafn á nýrri vatnsrennibraut við Sundlaug Húsavíkur. 

Skilafrestur á tillögum að nafni er 7. desember og mun sveitarstjórn Norðurþings velja úr innsendum tillögum á sveitarstjórnarfundi 11. desember. 
Vinningshafi mun hljóta árskort fyrir sig og fjölskyldu sína og að auki fá að fara fyrstu bununa niður vatnsrennibrautina. 

Vinsamlegast sendið inn tillögu að nafni á netfangið nordurthing@nordurthing.is merktum "Rennibraut".