Fara í efni

Starfsmaður í Þjónustan heim

Markmið starfsins er að aðstoða og valdefla einstaklinga með sérstakar stuðningsþarfir til virkni og sjálfstæðrar búsetu. 
Starfið felst í að veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklinga eru hafðir að leiðarljósi. Starfsmaður vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun. Þjónustunotendur eru einstaklingar með sérstakar stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda.
 
Hæfniskröfur:
  • Menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að afla sér aukinnar þekkingar með námi eða þátttöku á námskeiðum og starfsmenntun.
  • Sjúkraliða- eða félagsliðamenntun er kostur.
  • Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2021 - Hvetjum karla jafn sem konur að sækja um.
 
Hægt er að sækja um störfin rafrænt á vef Norðurþings - hér
Nánari upplýsingar veitir Fanney Hreinsdóttir - fanney@nordurthing.is  eða í síma 464 6100.
Vinnutími er frá 08:00 - 16:00  -  Starfshlutfall er 100%.