Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi fara fram laugardaginn 26. maí 2018.

Framboðum skal skila í síðasta lagi laugardaginn 5. maí 2018 kl. 12:00, á Skrifstofu Norðurþings á Húsavík (suður inngangur). Þann dag mun Yfirkjörstjórn Norðurþings verða til viðtals frá kl. 11:00.

Framboðslistar skulu skipaðir 9-18 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 40-80 meðmælenda (meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Norðurþingi og hver þeirra getur einugis mælt með einu framboði).

Allar nánari upplýsingar um undirbúning og framkvæmd kosninganna og framlagningu framboða er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosningar.is og hjá Skrifstofu Norðurþings, sími 464-6100, kjorstjorn@nordurthing.is.