Fara í efni

Tillaga að breytingu aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 við heilbrigðisstofnanir á Húsavík

Tillaga að breytingu aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 við heilbrigðisstofnanir á Húsavík

Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar tillögu að breytingu aðalskipulags á svæði heilbrigðisstofnana á Húsavík.  Breytingin felst í að þjónustusvæði Þ1 stækkar úr 3,2 ha í 3,5 ha. Stækkun þjónustusvæðisins skerðir grænt svæði milli enda Skálabrekku og húsa við Auðbrekku, þ.e. austur af sjúkrahúsi. Auk þess minnka íbúðarreitir Í2 og Í3 lítillega. Skipulagstillagan er sett fram í A4 hefti.

Skipulagstillagan verður til sýnis á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 8. apríl 2020 til og með föstudeginum 22. maí 2020.  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með föstudeginum 22. maí 2020.  Skila skal skriflegum athugasemdum til sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.  

Skipulagstilöguna má finna hér 

Húsavík 1. apríl 2020
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi