Fara í efni

Útboð – Reykjaheiðarvegur

Sveitarfélagið Norðurþing og Orkuveita Húsavíkur óska eftir tilboðum í framkvæmdir við jarðvegsskipti, nýlagnir veitna, lagningu snjóbræðslu og malbikun við endurgerð á Reykjaheiðarvegi á Húsavík.
 
Helstu magntölur í verkinu eru:
Uppúrtekt úr götu og stígum......um 2.300 m³
Gröftur fyrir lögnum.....................um 530 m³
Fylling............................................um 2.400 m³
Stofnlagnir fráveitu.......................um 530 m
Stofnlagnir vatns- og hitaveitu....um 200 m
Snjóbræðslurör.............................um 3.400 m
Malbik...........................................um 1700m2
Hellulögn.......................................um 800 m2
 
Að auki eru í verkinu lagning rafmagnsstrengja og ídráttarröra og söndun/frágangur þeirra.
 
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2020.
 
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík og á skrifstofu Verkís að Garðarsbraut 26, 640 Húsavík frá og með föstudeginum 13. desember 2019. Einnig er hægt að óska eftir að fá gögnin send í tölvupósti og skal þá senda beiðni um slíkt á netfangið rab@verkis.is.
 
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Verkís að Garðarsbraut 26, 640 Húsavík þann 14. janúar 2020 klukkan 10.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Kynningarfundur fyrir væntanlega bjóðendur verður haldinn á skrifstofu Verkís á Húsavík þann 18. desember 2019 kl. 10.00.