Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir starfsmönnum í búsetuúrræði fyrir fatlað fólk hjá sveitarfélaginu. Annarsvegar er um að ræða nýtt búsetuúrræði sem fellur undir Vík íbúðarkjarna og hinsvegar úrræði sem fellur undir Pálsgarð.
Tvær stöður, annars vegar umsjónarkennara og hins vegar kennara samrekins leik- og grunnskóla Raufarhafnar eru lausar til umsóknar. Samtals er um eitt og hálft stöðugildi að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.
Lesið var af öllum stafrænum hitaveitumælum á þjónustusvæði Orkuveitunnar í ársbyrjun. Við álestur myndast uppgjör og áætlanir uppfærast sem getur haft áhrif á næstu hitaveitureikninga frá okkur.
Síðastliðið sumar voru settir upp grenndargámar við Tún á Húsavík til að einfalda íbúum að losa sig á skilvirkan hátt við gler, járn og textíl frá heimilum en sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum að safna þessum flokkum til að hámarka hlutfall úrgangs sem er hæfur til endurvinnslu eða endurnýtingar. Því miður hefur umgengni um grenndargámana verið slæm frá fyrsta degi.
Við vekjum athygli á því að klukkan 17:00 í dag 30. janúar verður æfing hjá Slökkviliðinu í sundlaug Húsavíkur.
Þess vegna verða slökkviliðsbílar við sundlaug Húsavíkur frá kl. 17:00.