Fara í efni

Deiliskipulag fiskeldis í Núpsmýri í Öxarfirði

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á fundi sínum 20. apríl 2021 deiliskipulag  iðnaðarsvæðis I3 í Norðurþingi fyrir fiskeldi í Núpsmýri í Öxarfirði. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhversmat áætlana nr. 105/2006. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn sveitarstjórnar. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda. 

Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings