Fara í efni

Forstöðumaður Húsavíkurstofu

Húsavíkurstofa auglýsir eftir forstöðumanni til starfa sem fyrst. Starfshlutfall eftir samkomulagi en aldrei minna en 70%. Hlutverk forstöðumanns er að efla markaðssetningu á svæðinu, taka þátt í þróun og uppbyggingu á starfinu og umsjón með upplýsingamiðlun til ferðamanna. 

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Ábyrgð á markaðs- og kynningarstarfi Húsvíkurstofu
  • Daglegur rekstur
  • Markaðssetning á svæðinu og gerð markaðsáætlunar
  • Útgáfa kynningarefnis og birting auglýsinga

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Sölutækni, góð almenn tölvukunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum

Kunnátta í hönnunar- og myndvinnsluforritum er kostur en ekki skilyrði.

 

Umókn ásamt ferilskrá berist á stjórnarformann Húsavíkurstofu á netfangið info@visithusavik.is

Umsóknarfrestur er til 26. janúar 2020