Fara í efni

Frístund á Húsavík óskar eftir frístundaleiðbeinanda

Frístund í Borgarhólsskóla er staðsett á efri hæð í Íþróttahöllinni á Húsavík. Frístund er í boði fyrir börn í 1.-4. bekk þar sem hlutverkið er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf sem hentar öllum.

Frístundaleiðbeinandi í 50% starfshlutfall. Vinnutími er kl. 12 - 18 alla virka daga.

Umsóknarfrestur er til 29. ágúst 2022 og skal umsóknum skilað í tölvupósti á netfangið kristinn@nordurthing.is