Fara í efni

Unnið er að malbikun á Golfskálavegi

 Í dag er unnið að malbikun á nýjum vegi upp að golfskála. 

Nú hefur verið óvenju góð tíð og því er hægt að sinna ýmsum verkum sem venjulega er ekki hægt að sinna í lok nóvember. 
Golfskálavegur liggur í framhaldi af Langholti og verður mikil samgöngubót fyrir þá sem stunda golf sem og aðra.