Fara í efni

Hafnavörður/ Hafnsögumaður óskast á hafnir Norðurþings.

Hafnavörður/ Hafnsögumaður óskast á hafnir Norðurþings.
Hafnir Norðurþings óskar eftir að ráða hafnavörð og hafnsögumann til starfa á höfnum sveitarfélagsins. Hafnir Norðurþings samanstanda af höfnum á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.
Starfsheitið er: Hafnarvörður/Hafnsögumaður II - um er að ræða eitt starf. 
 
Starfsvið:
Starfið felur m.a. í sér leiðsögu skipa um hafnsögu hafna skv. lögum um leiðsögu skipa nr. 34/1993. Hafnarvörður annast alla almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskipavini hennar. Hann vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun ásamt skráningu og skýrslugerðum sem við kemur allri umferð um hafnarsvæði.
Hafnavörður starfar m.a. við öryggiseftirlit á hafnarsvæðum, vinnur að öryggismálum og mengunarvörnum. Hafnarvörður sér um að ákvarða staðsetningu skipa í höfnum, aðstoða við að binda skip við bryggju og afgreiða vatn og rafmagn til skipa. Hann sér um daglegt viðhald hafnamannvirkja og búnaðar í samstarfi við aðra starfsmenn hafna Norðurþings ásamt öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun hafnarstjóra.
 
Sýna þarf sakavottorð í umsóknarferli vigtarréttinda.
Starfsstöð er Húsvíkurhöfn en verkefni geta þó náð yfir allar hafnir Norðurþings.
 
Umsóknarfrestur til og með 17. maí 2021.
 
Menntun og reynsla:
  • Skipstjórnarréttindi 2. Stig.
  • Gilt ökuskírteini.
  • Löggilding vigtarmanns er kostur.
  • Hafnsöguréttindi er kostur.
  • Réttindi til hafnaverndar er kostur.
Hæfni:
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Skipulagshæfileikar, og nákvæmni við skráningu gagna.
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhersla er lögð á vandvirkni og nákvæmni í öllum störfum.
 
Leitað er eftir einstaklingum sem eru snyrtilegir, stundvísir og reglusamir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Laun skv. kjarasamningi samningarnefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
 
Upplýsingar um starfið veitir Þórir Örn Gunnarsson hafnastjóri í Norðurþingi í síma 464-6176 eða á netfang port@nordurthing.is.  
Umsóknum skal skila til skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut  7-9 á Húsavík eða með tölvupósti á netfangið port@nordurthing.is