Fara í efni

Jólaljós á Húsavík

Unnið er hörðum höndum að því að setja upp jólaljós bæjarins á Húsavík. Í dag voru "kertin" sett upp á ljósastaura í miðbænum og eftir Garðarsbraut og í kringum helgina verður jólatré við Hvamm lýst upp. 
Heyrst hefur ofan úr fjalli að Öskjutréið verði lýst upp með nýjum hætti og að nýtt skraut verði sett upp í miðbænum en jólasveinarnir eru nú ekki alltaf þeir áreiðanlegustu. 

Uppsetning jólaljósa er fyrr í ár en ella og er það m.a. gert vegna hvatningar um að lýsa upp skammdegið og Covid tímann. Hvetjum við bæjarbúa og íbúa Norðurþings til þess að lýsa upp heimili með jólaljósum.