Fara í efni

Laus staða aðstoðarmatráðs við Öxarfjarðarskóla.

Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 50 nemendur, þar af 30 nemendur í grunnskóla. Starfsmenn eru alls um 20. Leikskóladeildir skólans eru bæði í Lundi og á Kópaskeri. Starfað er í anda Jákvæðs aga og verið er að innleiða teymiskennslu í grunnskólanum. Þar er um að ræða samkennslu árganga.
Skólinn er í samstarfi við Grunnskóla Raufarhafnar stýrir sami skólastjóri báðum skólum. Einnig á skólinn í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur sem þjónustar nemendur grunnskólans.
Aðstoðarmatráður óskast til starfa við Öxarfjarðarskóla í Lundi í 50% stöðu.
Vinnutíminn er mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9:00 – 14:00.

Helstu verkefni og ábyrgð 
• Unnið undir verkstjórn matráðs
• Sjá um að framreiða hollan og góðan mat
• Þrif í eldhúsi

Menntunar- og hæfniskröfur 

• Reynsla af störfum í mötuneyti
• Áreiðanleiki og stundvísi
• jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum

Umsóknir skulu sendar til skólastjóra Öxarfjarðarskóla á netfangið hrund@nordurthing.is 
Mikilvægt er að ferilskrá og meðmælendur fylgi með umsóknum. 
Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2022. 
Allar frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 465-2246 eða á hrund@nordurthing.is