Fara í efni

Netaveiði göngusilungs í sjó 2021

Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó í landi Húsavíkur.

Veiðisvæðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind.  Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði.  Veiðin er háð þeim lögum og reglugerðum sem gilda um veiðar á göngusilungi.

Sækja skal um veiðileyfi rafrænt á vef Norðurþings.

 

Leyfisgjald fyrir hvert veiðileyfi er kr. 12.000,- og greiðist við afhendingu leyfis og fylgigagna. Frekari upplýsingar fást í síma 464-6100.

Verði umsóknir fleiri en leyfi fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum.  Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 30. apríl nk. Úthlutun leyfa fer fram kl 14:00 næsta virka dag.

Ketill Gauti Árnason,
Verkefnastjóri framkvæmdasviðs