Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf þjónustufulltrúa hjá Norðurþingi

Anna Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í starf þjónustufulltrúa hjá Norðurþingi. Anna er með stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri og BA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem safnvörður, upplýsingafulltrúi, verslunarstjóri, rekstrarstjóri og nú síðast sem leiðbeinandi á leikskóla. Anna hefur því fjölbreytta og víðtæka reynslu af ýmsum störfum sem mun koma til með að nýtast henni í starfi þjónustufulltrúa.

Við bjóðum Önnu velkomna til starfa hjá Norðurþingi.