Fara í efni

Ráðið hefur verið í stöðu fulltrúa í launavinnslu og bókhaldi á fjármála- og bókhaldssviði Norðurþings

Gengið hefur verið frá ráðningu í starf fulltrúa í launavinnslu og bókhald á fjármála- og bókhaldssviði.

Ráðin var Jóna Björg Arnarsdóttir, en Jóna Björg er með stúdentspróf úr háskólagátt Háskólans á Bifröst og hefur þekkingu á launavinnslu og reynslu af vinnu við bókhald auk þess að hafa rekið eigið fyrirtæki.

Jóna Björg hefur sinnt margvíslegum og fjölbreyttum störfum á liðnum árum og mun reynsla hennar koma að góðum notum í starfi fulltrúa við launavinnslu og bókhald hjá Norðurþingi.

Jóna Björg hefur störf á mánudag og við tökum vel á móti henni.