Fara í efni

Ráðið hefur verið í tímabundið starf launafulltrúa Norðurþings

Brynja Rún Benediktsdóttir hefur verið ráðin í tímabundið starf launafulltrúa Norðurþings, en Brynja er með MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá The University of Edinburgh Business School og hefur góða þekkingu á launavinnslu og tímaskráningarkerfum.

Brynja Rún hefur undanfarið starfað sem mannauðs- og hótelstjóri hjá Gistiheimili Húsavíkur ehf. þar sem hún sinnti mannauðs- og launamálum ásamt ýmsum öðrum verkefnum.

Brynja mun hefja störf í janúar.

Norðurþing býður Brynju velkomna til starfa.