Fara í efni

Reglur um sérstakra íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021

Fjölskylduráð Norðurþings vill benda á sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020 -2021 og nýsamþykktar reglur um úthlutun þeirra.

Reglur þessar, sem byggðar eru á leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021, öðlast þegar gildi.

Fjölskylduráð getur skilyrt styrki og gert samninga um afhendingu þeirra. Umsjónarmaður menningarmála skal fylgjast með að skilyrðum vegna skilyrtra styrkja / samningsbundinna styrkja sé framfylgt.

Reglur þessar eru gefnar út til að samræmis sé gætt við úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja til barna frá tekjulágum heimilum til að auka jöfnuð til íþrótta- og tómstundastarf, sbr. fjáraukalög fyrir árið 2020, sbr. og lög nr. 26/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins.
Styrkir þessir eru veittir af sveitarfélaginu á grundvelli VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Reglurnar má finna hér í heild sinni