Fara í efni

Síðasta vinnustofan fyrir Uppbyggingarsjóð - rafræn vinnustofa

Á fimmtudaginn kl. 17:00-18:00 verður rafræn vinnustofa varðandi helstu atriði í ferli umsókna í Uppbyggingarsjóð og færi gefið á að spyrja spurninga sem brenna á þeim sem eru að móta sín verkefni og skrifa umsóknir.
Vinnustofan stendur yfir í um eina klukkustund.
Best er að skrá þátttöku inn á facebook viðburðinn til að fá áminningu eða þá skrá sig í gegnum heimasíðu SSNE og fá áminningarpóst degi fyrir vinnustofuna.

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2022.
Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 miðvikudaginn 10. nóvember 2021.

Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:

  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Í takt við sóknaráætlun landshlutans verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem snúa að umhverfismálum.

Hér má lesa nánar um uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra.