Fara í efni

Skráning í sumarfrístund frestast en unnið er að lausn á málinu

Því miður er skráning í sumarfrístund ekki hafin. Ástæðan er sú að Nora skráningarkerfinu var lokað fyrirvaralaust og ekki hefur gengið að fá aðgang að kerfinu að nýju, né svör frá umsjónarmönnum kerfisins um hvað sé til ráða.
Sportabler er nýtt kerfi á að taka við af Nora. Starfsfólk Norðurþings hefur óskað eftir aðgangi að kerfinu frá því í janúar en án árangurs.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en unnið er hörðum höndum að lausn á málinu.