Fara í efni

Starf þjónustufulltrúa laust til umsóknar

Norðurþing auglýsir laust 80 - 100% starf þjónustufulltrúa í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík til umsóknar.

Helstu viðfangsefni:

  • Þjónusta í móttöku og símsvörun
  • Umsjón með vefsíðu sveitarfélagsins
  • Umsjón með samfélagsmiðlum sveitarfélagsins
  • Hönnun og uppsetning auglýsinga og annars efnis sem gefið er út og prentað fyrir sveitarfélagið
  • Umsjón með upplýsingamiðlun til íbúa
  • Vinna við skjalavinnslu sveitarfélagsins
  • Aðkoma að stafrænni þróun sveitarfélagsins
  • Aðkoma að markaðs- og kynningarmálum sveitarfélagsins
  • Önnur tilfallandi verkefni

Þekking og hæfni:

  • Stúdentspróf eða sambærilegt próf er nauðsynlegt
  • Góð íslensku og ensku kunnátta er nauðsynleg
  • Frumkvæði, samviskusemi og vandvirkni er nauðsynleg
  • Þekking á opinberum rekstri og stjórnsýslu er kostur
  • Reynsla af símsvörun eða þjónustu er kostur
  • Þekking á hönnun auglýsinga er kostur
  • Reynsla og þekking á vinnu við framsetningu efnis á samfélagsmiðlum er kostur

 

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2021.

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Norðurþing hvetur öll kyn til að sækja um. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Berglind Jóna Þorláksdóttir, skrifstofu og skjalastjóri í síma 464-6100. Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá og umsóknum skal skila á netfangið jona@nordurthing.is