Fara í efni

Sumarfrístund á Húsavík - skráning hafin

Sumarfrístund mun hefjast miðvikudaginn 9.júní.

Á síðustu stundu náðist að fylla í öll störf frístundar og verður vistun í boði fyrir 1-4 bekk alla virka daga frá 8-12 & 13-16. Hádegishlé er á milli 12-13.
Búið er að opna skráningar og skrá þarf í fyrstu vikuna (9. - 11.júní) fyrir kl 23.59 mánudaginn 7.júní.

Frístund fyrir hádegi

Byrjað er að taka við skráningum fyrir hádegi og er skráð með því að fylla út eyðublað https://www.nordurthing.is/is/moya/formbuilder/index/index/skraning-barns-i-fristund-fyrir-hadegi

Skrá má eina viku í senn en bent er á að skráningar endurnýjast ekki sjálfkrafa eins og í skólafrístund. Skráningareyðublaðið á að útskýra þetta nokkuð vel.
Verð fyrir staka viku er 3.500 kr. (700 kr. á dag).
Þær vikur sem eru ekki með 5 daga opnun eru því ódýrari sem nemur 700kr á dag

Nánar um frístund fyrir hádegi

 

Frístund eftir hádegi

Eftir hádegi er annað fyrirkomulag á frístund og fer sú skráning fram í gegnum Nora kerfið. Þar er hægt að nýta frístundastyrk Norðurþings sem greiðsluleið.
Verð fyrir staka viku er 7.200 kr.
ATH ! Skráningar þurfa að berast á fimmtudegi fyrir komandi viku (mánudag í fyrsta námskeiði). 

Nánar um frístund eftir hádegi

 

Fleira í boði !

Að lokum er bent á annað íþróttastarf sem er í boði í sumar á vegum íþróttafélaga.
Minnum á að hægt er að nýta frístundastyrk Norðurþings við greiðslu æfingagjalda ef námskeið eru skráð í Nora kerfi.

Nánari upplýsingar um önnur námskeið er að finna hér:

-          Völsungur – volsungur.is - https://volsungur.felog.is/  (knattspyrna, sundnámskeið)

-          GH – golfnámskeið – skráning inná https://hsth.felog.is/  

-          HSÞ – Frjálsar íþróttir skráning inná https://hsth.felog.is/

-          CF Húsavík stendur fyrir crossfit námskeiði nánar hér

-           Siglinganámskeið Völsungs - nánar hér 

-           Granamenn stefna á reiðnámskeið í sumar. Auglýst ef af verður.