Fara í efni

Sumarfrístund auglýsir eftir starfsmanni

Norðurþing auglýsir 100% sumarstarf í sumarfrístund á Húsavík og önnur tilfallandi störf fyrir sumarið 2021.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki síðar en 7. júní og þarf að hafa náð 18 ára aldri.
 
Helstu hæfniskröfur:
  • Góð reynsla af starfi með börnum
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Hæfni til að skapa liðsheild í starfsmannahópnum
  • Getu til að sýna frumkvæði
  • Starfsreynsla í félagsmiðstöð og eða öðru tómstunda- og frístundastarfi er kostur
  • Samskiptahæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Lúðvíksson, Forstöðumaður frístundar- og félagsmiðstöðvar
Kristinn@nordurthing.is
663 5290 / 661-1215