Fara í efni

Tillaga að breytingu deiliskipulags fiskeldisstöðvar Rifóss á Röndinni, Kópaskeri

Sveitarstjórn Norðurþings, að tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs, samþykkti á fundi sínum þann 18. maí 2021 að kynna tillögu að breytingu deiliskipulags fiskeldisstöðvar Rifóss á Röndinni, Kópaskeri skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingartillagan felur í sér sameiningu og stækkun byggingarreita auk þess sem gert er ráð fyrir að byggja megi hús með allt að 11,2 m. vegghæð og 14,2 m. mænishæð á kerjapöllunum. Gert er ráð fyrir að byggja megi allt að 800 m² þjónustuhús innan byggingarreits A1. Breytingartillagan ásamt greinargerð er sett fram á einu blaði í blaðstærð A1.

Breytingartillögu má finna hér auk þess sem hún hangir uppi á skrifstofum Norðurþings á Húsavík og Kópaskeri. Kynningartími skipulagsins er frá 3. júní til 16. júlí 2021. Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við breytingartillöguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 16. júlí 2021. Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti á nordurthing@nordurthing.is