Fara í efni

Tillaga að breytingu deiliskipulags fiskeldisstöðvar Rifóss að Lóni í Kelduhverfi

Tillaga að breytingu deiliskipulags fiskeldisstöðvar Rifóss að Lóni í Kelduhverfi

 Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar breytingu á deiliskipulagi fiskeldisstöðvar Rifóss í Kelduhverfi.  Breytingar eru nokkuð margvíslegar en felast m.a. í:  Stækkun lóðar við seiðastöð, stækkun byggingarreits fyrir eldisker til að rúma allt að 17 ný fiskeldisker í landi, skilgreindur byggingarreitur undir nýja seiðastöð og skilgreint er svæði í innra lóninu þar sem heimilt verði að staðsetja eldiskvíar.  Breytingartillagan ásamt greinargerð er sett fram á einum blaði í blaðstærð A1, sem má nálgast hér

Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 30. janúar til 13. mars 2018.  Ennfremur verður hægt að skoða breytingartillöguna á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is).  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til þriðjudagsins 13. mars 2018.  Skila skal skriflegum athugasemdum til bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

 

Húsavík 21. janúar 2018

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi