Fara í efni

Tillaga að deiliskipulagi athafnasvæðis A5 – Kringlumýri á Húsavík

Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis A5 – Kringlumýri á Húsavík.  Deiliskipulagstillagan sýnir þau mannvirki sem þegar hafa verið reist og skilgreinir frekari byggingarrétt og skilmála um heildarásýnd svæðisins til lengri tíma.  Á svæðinu eru nú þegar tvær byggingarlóðir, og ekki gert ráð fyrir að þeim fjölgi.  Skipulagið gerir ráð fyrir breyttum aðkomuleiðum að lóð Norðlenska Matborðsins ehf.  Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti á blaðstærð A2 auk greinargerðar í A4 hefti.

 

Skipulagstillagan verður til sýnis á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 9. mars til 20. apríl 2018.  Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillöguna á heimasíðu Norðurþings (sjá hlekki).  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til föstudagsins 20. apríl 2018.  Skila skal skriflegum athugasemdum til sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

Hér má nálgast deiliskipulagsuppdrátt fyrir athafnasvæði (A5) Kringlumýri

Hér má nálgast skipulagsgreinargerð fyrir deiliskipulagið

 

Húsavík 2. mars 2018

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi