Fara í efni

Tímabundnar breytingar á opnunartíma Stjórnsýsluhússins á Húsavík.

Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun stjórnsýsluhúsið á Húsavík verða opið frá 09:00-12:00 fyrir almenna móttöku. Umgangur um húsið verður þó lágmarkaður, bæði af gestum og starfsfólki.

Starfsfólk mun eftir aðstæðum vinna sem mest heima fyrir, mismunandi þó eftir sviðum.

Viljum við biðja þá sem eiga erindi við okkur að hringja fyrst í síma 464 6100 og/eða senda tölvupóst á viðkomandi starfsmann (sjá netfangalista starfsfólks) og reyna að afgreiða erindi með þeim hætti áður en kemur til þess að mæta til okkar í afgreiðsluna.

Frá 12:00 til 16:00 verður síminn 464 - 6100 opinn og hægt að senda tölvupóst á netfangið nordurthing@nordurthing.is

Upplýsingar um opnunartíma á Raufarhöfn og Kópaskeri koma á morgun.

Þetta er gert til að lágmarka smithættu starfsfólks og skjólstæðinga og höfðum við til samfélagslegrar ábyrgðar hvers og eins í þeirri stöðu sem komin er upp í samfélaginu.

 

Allar helstu upplýsingar um covid-19 má finna á Covid.is