Í sumar verður boðið upp á sumarfrístund fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10-18 ára með fjölþættar stuðningsþarfir (einnig börn sem hafa lokið 4. bekk). Opið verður frá skólalokum 5. júní og þar til skóli hefst á ný í haust. Opið verður alla virka daga frá 10 – 16.
Auglýst var eftir umsóknum í Afreks- og viðurkenningarsjóð fyrr á árinu.
Fjölskylduráð tók fyrir og fjallaði um umsóknir á 142. fundi þann 21. febrúar sl.
Norðurþing óskar eftir að ráða öflugan leiðtoga í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs sveitarfélagsins. Undir sviðið falla m.a. yfirstjórn umhverfismála, framkvæmda, eigna- og tækjasjóðs og þjónustumiðstöðva.
Á fundi byggðarráðs Norðurþings þann 23. febrúar sl. samþykkti ráðið að styrkja Sóknarnefnd Húsavíkurkirkju um allt að 5 milljónir króna á árinu 2023 vegna framkvæmda á lóð við kirkjuna sem fyrirhugað er að hefjist nú í vor.