Fara í efni

Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöð veturinn 2021-2022

Félagsmiðstöðin Tún á Húsavík auglýsir eftir starfsfólki í vaktarvinnu á kvöldin. Unnið er með ungmennum á aldursbilinu 10-16 ára.

Vinnutími getur verið breytilegur en fer að mestu leyti fram eftir kl. 17:00 mánudaga og miðvikudaga.

Umsækjandi þarf að:

  • Hafa náð 18 ára aldri.
  • Hafa hreint sakavottorð
  • Hafa gott vald á íslensku
  • Hafa áhuga á að vinna með börnum
  • Geta unnið vel með öðrum
  • Vera liprir og jákvæðir í mannlegum samskiptum.
  • Hafa frumkvæði og verið sveigjanlegur í starfi
  • Reynsla að starfi með börnum/ungmennum er æskileg.

Viðkomandi má hefja störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Eingöngu er tekið við umsóknum sem berast með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem finna má hér. 

Frekari upplýsingar veita
- Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings í síma 464-6100 – kjartan@nordurthing.is
- Kristinn Lúðvíksson, forstöðumaður frístundar og félagsmiðstöðva - kristinn@nordurthing.is 

Umsóknarfrestur er til 27.águst 2021.