Fara í efni

Grunnskólakennara vantar við Borgarhólsskóla á Húsavík

 

Um er að ræða tvær tímabundnar stöður vegna leyfa og forfalla.

Afleysingarstaða 100% starf, næsta skólaár og 100% afleysingarstaða til áramóta.

 

Við leitum að kennara sem:

 

  • treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
  • er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
  • er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði.

 

Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík. Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru. Skólasýn, stefnu skólans og fleiri upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans http://www.borgarholsskoli.is

 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til 28. júní 2017

 

Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is

Ferilskrá skal fylgja umsókn sem og afrit af prófskírteinum.