Fara í efni

Laust starf - Sambýlið Pálsgarður

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir áhugasömum starfsmanni á sambýlið Pálsgarð

Markmið starfsins: Góð umönnun, virðing og vinsemd. Fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan íbúa.

Veita íbúum félagslegan stuðning og aðstoð við almenn störf á heimilum íbúa svo sem þrif og matseld. Stuðningur til sjálfshjálpar, samfélagslegrar þátttöku og almennrar virkni. Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.

Hæfniskröfur:  Áhugi á að starfa með fötluðu fólki með umhyggju og virðingu að leiðarljósi. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði.

Starfshlutfall: 70 - 100%

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli III

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn samkvæmt vaktaskýrslu sem lögð er fram með sex vikna fyrirvara og samkvæmt samkomulagi við yfirmann. ( Einnig er hægt að bera fram séróskir ).

 Áhugasamir hafi samband við

félagsmálastjóra Hróðný Lund
hrodny@nordurthing.is  Sími 4646100
Hildar Rós Pálsdóttir  Forstöðumaður Pálsgarðs
hilda@nordurthing.is sími 4641320