Fara í efni

Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Grænuvelli á Húsavík

Metnaðarfullur leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Grænuvelli á Húsavík. Leikskólinn er 8 deilda fyrir 1-6 ára nemendur. Í leikskólanum er starfað eftir lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla og námskrá Grænuvalla. Starfið byggir á uppeldisstefnu Jane Nelsen um jákvæðan aga. Við leggjum einnig áherslu á frjálsan leik, snemmtæka íhlutun, markvissa málörvun og útikennslu. Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vinátta, vellíðan.

Hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun (önnur menntun sem nýtist í starfinu kemur einnig vel til greina)
Hreint sakavottorð

Færni í samskiptum 
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
Góð íslenskukunnátta 

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða tvær 100% stöður og eina 50% stöðu til eins árs með möguleika á framlengingu. Karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Helga Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 464-6160/464-6158 eða með því að senda fyrirspurn á helgaj@graenuvellir.is